Silfursmári 12
Nýtt hágæða skrifstofu-, verslunar- eða þjónusturými - á frábærum stað við Silfursmára 12.
Við bjóðum til leigu nýtt hágæða skrifstofu-, verslunar- eða þjónusturými við Silfursmára 12 sem tilbúið verður til afhendingar í vor. Húsnæðið er staðsett á besta stað í miðju höfuðborgarsvæðisins og býður upp á fjölbreytta möguleika fyrir fyrirtæki sem vilja nýta sér sterka staðsetningu, frábæra aðstöðu og sveigjanlegt skipulag.
Helstu kostir: Staðsett í miðju höfuðborgarsvæðisins með fjölbreytta samgöngumáta. Mikil þjónusta í nánasta umhverfi. Nútíma vinnuumhverfi sem býður uppá mikil gæði, góða dagsbirtu, hljóðvist og loftgæði.
Stærð: Um 2.400 m² að viðbættum bílakjallara, geymslum og búningsaðstöðu. Möguleiki er á sérsniði og sveigjanleika eftir þörfum leigutaka.
Skipulag: Silfursmári 12 er á fjórum hæðum og er möguleiki á að vera með verslun og þjónustu á jarðhæð.
Aðstaða: Silfursmári 12 verður Svansvottuð bygging og tekur öll hönnun mið af því. Sambland af timbri, stáli og steypu sem gefur hlýlegt yfirbragð.
Aðgengi: 24 stæði í bílakjallara, 28 bílastæðum á lóð ásamt fjölda bílastæða við Smáralind.
Umhverfi: Mikil þjónusta er í nærumhverfi og má þar nefna t.d Smárlindina og heilsugæslu í 100m fjarlægð. Í Smáralind eru samankomnir um 100 rekstraraðilar sem bjóða upp á margvíslega verslun, þjónustu, veitingar og afþreyingu fyrir fólk á öllum aldri. Nýtt veitingasvæði mun opna þar fyrir lok árs 2025.
Þetta rými er tilvalið fyrir fyrirtæki í mismunandi atvinnugreinum sem þurfa gott vinnuumhverfi. Staðsetningin tryggir mjög gott aðgengi og einstakan sýnileika.
Áhugasömum er bent á að hafa samband á leiga@heimar.is fyrir nánari upplýsingar.
Ný miðja höfuðborgarsvæðisins
Smárinn í Kópavogi er miðja höfuðborgarsvæðisins og er svæðið einn af lykilkjörnum félagsins. Í Smáranum hafa Heimar þróað fjölbreytta blöndu húsnæðis fyrir verslanir, veitingastaði, afþreyingu og skrifstofuhúsnæði. Smáralind er stærsta verslunarmiðstöð landsins og er jafnframt hjarta svæðisins. Í Smáralind eru samankomnir um 100 rekstraraðilar og eru árlegir gestir um 4 milljónir.
Silfursmári er nýjasta viðbótin við Smárasvæðið en þar bjóða Heimar til leigu nútímaleg og einstaklega vel staðsett verslunar- og þjónusturými rétt við Smáralind.
- Mikil þétting í gangi næst Smáralind með íbúðum og atvinnuhúsnæði
- Umframeftirspurn bæði eftir íbúðar- og atvinnuhúsnæði á svæðinu
- Stærri fyrirtæki og stofnanir sækja mjög sterkt í svæðið
- Borgarlína gefur mikil tækifæri til framtíðar
- Tækifæri í tengingum við alþjóðaflugvöllinn í KEF
- 3000 fm skrifstofuhæð opnar í Smáralind árið 2024
- Ein allra glæsilegasta mathöll landsins opnar í Smáralind árið 2025
Áhugasamir eru beðnir um að hafa samband á leiga@heimar.is.