Skrifstofurými við Smáralind
Skemmtilegt skrifstofu-, verslunar- eða þjónusturými á neðri hæð jarðhæð í vesturenda Smáralindar.
Við bjóðum til leigu skemmtilegt skrifstofu-, verslunar- eða þjónusturými við vesturenda Smáralindar. Rýmið er staðsett á besta stað í miðju höfuðborgarsvæðisins í nálægð helstu stofnbrauta.
Helstu kostir: Staðsett í miðju höfuðborgarsvæðisins með fjölbreytta samgöngumáta. Mikil þjónusta í nánasta umhverfi.
Stærð: 413 m2
Skipulag: Rýmið er í dag innréttað sem skrifstofurými með góðu opnu vinnurými, fundarherbergjum og vandaðri kaffiaðstöðu.
Aðstaða: Rýmið er með einstaklega góðri lofthæð og hentar vel fyrir verslun og þjónustu, skrifstofustarfssemi eða afþreyingu.
Aðgengi: Sérinngangur er í rými og gott aðgengi. Mikill fjöldi bílastæða er til staðar.
Umhverfi: Mikil þjónusta er í nærumhverfi og má þar nefna t.d Smárlindina og heilsugæsla. Í Smáralind eru samankomnir um 100 rekstraraðilar sem bjóða upp á margvíslega verslun, þjónustu, veitingar og afþreyingu fyrir fólk á öllum aldri, árlega eru gestir Smáralindar um 4 milljónir. Nýtt veitingasvæði mun opna í Smáralind fyrir lok árs 2025.
Áhugasömum er bent á að hafa samband á leiga@heimar.is fyrir nánari upplýsingar.
Ný miðja höfuðborgarsvæðisins
Smárinn í Kópavogi er miðja höfuðborgarsvæðisins og er svæðið einn af lykilkjörnum félagsins. Í Smáranum hafa Heimar þróað fjölbreytta blöndu húsnæðis fyrir verslanir, veitingastaði, afþreyingu og skrifstofuhúsnæði. Smáralind er stærsta verslunarmiðstöð landsins og er jafnframt hjarta svæðisins. Í Smáralind eru samankomnir um 100 rekstraraðilar og eru árlegir gestir um 4 milljónir.
Silfursmári er nýjasta viðbótin við Smárasvæðið en þar bjóða Heimar til leigu nútímaleg og einstaklega vel staðsett verslunar- og þjónusturými rétt við Smáralind.
- Mikil þétting í gangi næst Smáralind með íbúðum og atvinnuhúsnæði
- Umframeftirspurn bæði eftir íbúðar- og atvinnuhúsnæði á svæðinu
- Stærri fyrirtæki og stofnanir sækja mjög sterkt í svæðið
- Borgarlína gefur mikil tækifæri til framtíðar
- Tækifæri í tengingum við alþjóðaflugvöllinn í KEF
- 3000 fm skrifstofuhæð opnar í Smáralind árið 2024
- Ein allra glæsilegasta mathöll landsins opnar í Smáralind árið 2025