Sjálfbærni

Stefnur

Grænir leigusamningar

Bæklingar og skýrslur

Umhverfisvottanir fasteigna

Hafðu samband

Heimar birtu uppgjör annars ársfjórðungs fimmtudaginn 21. ágúst 2025.

Nánar hér

Tilnefningarnefnd

Hlutverk og skipan tilnefningarnefndar

Hjá Heimum hf. starfar tilnefningarnefnd, sem hefur það hlutverk að vera ráðgefandi við val á stjórnarmönnum félagsins. Í því samhengi skal tilnefningarnefndin óska tímanlega eftir tillögum frá hluthöfum um stjórnarmenn fyrir félagið og ber nefndinni að taka við öllum tillögum og framboðum.

Tilnefningarnefnd Heima hf. var skipuð á aðalfundi félagsins 11. mars 2025 og er skipunartími hennar til aðalfundar 2026.

Árni Gunnarsson. Framkvæmdastjóri Olíudreifing ehf. Árni er með Dipl.Kfm M.Sc. frá háskólanum í Augsburg, Þýskalandi.

Heiðrún Lind Marteinsdóttir. Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS). Heiðrún er með BA og ML í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík og löggildingu í verðbréfamiðlun.

Ína Björk Hannesdóttir. Framkvæmdastjóri Rætur fasteignafélag ehf. ásamt dótturfélögum þess. Ína er með M.Sc. í fjármálum fyrirtækja frá Háskólanum í Reykjavík.


Hægt er að nálgast framboðseyðublað neðst á þessari síðu.

Senda má fyrirspurnir á tilnefningarnefnd@heimar.is

Við mat tilnefningarnefndar er höfð hliðsjón af Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja.

Í því samhengi leitast nefndin eftir því að meta frambjóðendur út frá hæfni, reynslu og þekkingu. Horfa þarf til hvort að breytingar séu framundan í starfsemi félagsins sem hafa áhrif á samsetningu stjórnar. Við mat á framboðum ber nefnd einnig að líta til niðurstöðu frá árangursmati stjórnar félagsins við mat á samsetningu stjórnar og hæfni stjórnarmanna.

Tillaga nefndarinnar þarf að auki að vera í samræmi við lög er snúa að kynjahlutfalli í stjórn og ákvæði annarri viðeigandi laga er lúta að hæfi stjórnarmanna.

Starfsreglur tilnefningarnefndar má nálgast HÉR.

 

Aðrar upplýsingar

Farið verður með allar persónuupplýsingar, sem tilnefningarnefnd berst, sem trúnaðarmál á meðan á vinnu nefndarinnar stendur.
Tillaga tilnefningarnefndar um val á stjórnarmönnum verður birt samhliða boðun aðalfundar eða í síðasta lagi þremur vikum fyrir aðalfund.
Þótt tilnefningarnefnd tilnefni ekki frambjóðanda í stjórn er framboðið eftir sem áður gilt hafi það uppfyllt öll formskilyrði. Vakin skal athygli á að endanlegar upplýsingar um alla frambjóðendur til stjórnar félagsins verða birtar eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfundinn, sbr. 63. gr. a. hlutafélagalaga nr. 2/1995.