
29. ágúst sl. kynnti Halldór Benjamín Þorbergsson forstjóri Heima hálfsársuppgjör á opnum kynningarfundi í höfuðstöðvum félagsins. Fundurinn var einnig sendur út í beinu streymi.Á eftirfarandi hlekk má nálgast upptöku af fundinum og kynningargögn fyrir uppgjörið: https://www.heimar.is/kynningarfundir/uppgjor-2f-2024/
Helstu atriði hálfsársuppgjörs 2024:
Rekstrartekjur voru 7,2 ma.kr. á fyrstu sex mánuðum ársins og leigutekjur hækka um 8,2% frá fyrra ári sem er tæplega 1,3% meiri aukning en hækkun verðlags á sama tíma.
EBITDA nam 4,9 ma.kr. og hækkar um 9,5% m.v. sama tímabil árið 2023.
Hagnaður var 4,3 ma.kr. en nam 6,1 ma.kr. á sama tímabili í fyrra.
Fjárfestingaeignir voru bókfærðar á 190,8 ma.kr.
Matsbreyting fjárfestingaeigna nam um 6,2 ma.kr. á fyrstu sex mánuðum ársins..
Handbært fé frá rekstri nam 2,7 ma.kr. og var handbært fé 2,3 ma.kr. í lok tímabils.
Vaxtaberandi skuldir voru 118,2 ma.kr. í lok tímabils.
Skuldahlutfall var 63% og eiginfjárhlutfall 31% í lok tímabils.
Hagnaður á hlut fyrir tímabilið nam 2,36 kr. en var 3,36 kr. á sama tíma í fyrra.
Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima:
„Rekstur gengur vel og er í takt við áætlanir. Við finnum fyrir sterkri eftirspurn eftir atvinnuhúsnæði. Tekjuvöxtur leigutekna er 8,2% á fyrstu sex mánuðum ársins sem jafngildir um 1,3% rauntekjuvexti. Heimar hafa fjárfest í uppfærslum á eignasafni og nýjum eignum á undanförnum árum, þessar fjárfestingar eru grundvöllur 8,2% vaxtar leigutekna á fyrstu sex mánuðum ársins. Heildarfermetrum eignasafnsins hefur fækkað um tæp 2% frá árslokum 2022.
Útleiguhlutfall er 97% sem er sambærilegt og verið hefur. Um 45% af tekjum félagsins koma frá opinberum aðilum annars vegar og skráðum fyrirtækjum hins vegar. Vanskil leigutaka eru lág og mörg útleiguverkefni í burðarliðnum.
Á öðrum ársfjórðungi voru undirritaðir leigusamningar um ríflega 17.400 m2 sem er rúmlega tvöföldun frá sama tímabili 2023. Áfram er mjög góð eftirspurn eftir atvinnuhúsnæði á kjarnasvæðum félagsins. Á síðustu mánuðum hafa bæst við ný atvinnurými á kjarnasvæði Heima í Silfur- og Sunnusmára og Sunnuhlíð á Akureyri.
Vel gekk að ná markmiðum félagsins varðandi útleigu og leiguverð.“