Heimar og Dineout kynna byltingu í mathöllum

Dineout ehf., eitt fremsta hugbúnaðarfyrirtæki landsins á sviði veitingalausna, hefur í samstarfi við Heimar innleitt nýja og byltingarkennda lausn á Hafnartorgi Gallery. Lausnin gerir gestum kleift að panta mat frá fleiri en einum veitingastað í einni og sömu pöntun, með einni greiðslu.Gestir skanna einfaldlega QR kóða sem staðsettir eru á öllum borðum og fá þá upp úrval allra veitingastaðanna, ásamt myndum og upplýsingum. Þar er svo hægt með einni pöntun að panta á mismunandi veitingastöðum og greiða fyrir allt í einni og sömu greiðslu. Lausnin hentar því einstaklega vel fyrir fjölskyldur og aðra hópa sem vilja greiða saman. Þessu til viðbótar er hægt að sjá áætlaðan biðtíma staðanna.
„Ég tala alveg af eigin reynslu, þegar við fjölskyldan förum saman á Hafnartorg Gallery þá vill hver fá sitt. Mig langar í sushi, maðurinn minn fer beint í steik, eitt barnið vill pizzu og hitt dreymir um mexíkóskt. Eftir matinn langar okkur svo í eftirrétt og kaffi frá sitthvorum stöðunum. Í stað þess að við séum öll á flakki á milli staða að panta og borga, setjum við þetta allt í eina pöntun og greiðum einu sinni. Það gerir upplifunina svo miklu betri – bæði fyrir viðskiptavini og starfsfólk.“ segir Inga Tinna Sigurðardóttir, forstjóri Dineout ehf.
Þegar maturinn er tilbúinn fær viðkomandi SMS-skilaboð í símann. Þannig getur fólk slakað á og notið samverunnar. Auk þess er hægt að fylgjast með stöðu pöntunarinnar í rauntíma á vefsíðunni.
„Það hefur lengi verið þörf fyrir einfalda og straumlínulagaða pöntunarupplifun í mathöllum, þar sem fjölbreytnin er lykilatriði. Nú getur fólk setið saman, pantað í rólegheitum og bætt við fleiri réttum án þess að yfirgefa borðið,“ bætir Inga Tinna við.
Á næstu vikum verða einnig innleiddir nýir sjálfsafgreiðslukioskar á Hafnartorgi Gallery sem bjóða upp á myndræna framsetningu rétta, hraðari þjónustu og aukna sjálfvirkni með áherslu á einfaldleika og upplifun gesta.
„Það er ótrúlega gaman að taka þátt í svona tímamótaverkefni þar sem tæknin nýtist til að bæta bæði upplifun gesta og rekstrarlega hagkvæmni fyrir veitingaaðila. Við hjá Heimum erum gríðarlega stolt af því að taka þátt í þessari þróun í samstarfi við Dineout, sem hefur sannarlega sýnt fram á hvað íslenskt hugvit og hönnun getur gert. Það skiptir okkur miklu máli að veitingaeiningar okkar séu nútímalegar, aðgengilegar og faglegar og þessi lausn er stórt skref í þá átt. Þetta er framtíðin og við erum spennt að bjóða gestum okkar að upplifa hana.“ segir Sandra Arnardóttir, markaðsstjóri Smáralindar og Hafnartorgs.
Dineout mun einnig sjá um sömu lausn og alla aðra tæknilega innviði, fyrir nýtt veitingasvæði Smáralindar sem nú er í framkvæmd og stefnt er á að opni fyrir lok árs 2025. Þar verður lögð áhersla á háþróaða upplifun fyrir gesti og hámarks hagkvæmni fyrir rekstraraðila, með sömu heildstæðu pöntunar-, afgreiðslu- og greiðslulausnum og á Hafnartorgi Gallery.