Heimar hafa lokið við að fara yfir hugmyndir sem bárust í samkeppni um hönnun nýrrar menningarmiðstöðvar í Smáralind. Að loknu mati á innsendum tillögum varð tillaga BASALT arkitekta valin til áframhaldandi þróunar verkefnisins.
Við mat á tillögunum var lögð áhersla á hugmyndafræði, aðgengi, flæði, sveigjanleika og notagildi. Einnig var horft til hagkvæmni, framkvæmdarhæfni, sjálfbærni og nýtingar á núverandi innviðum, sem og samspils Smáralindar við öflugt menningarstarf Kópavogsbæjar. Niðurstaðan er sú að tillaga BASALT veitir skýran og traustan grundvöll fyrir næstu skref í hönnun og undirbúningi verkefnisins.
Fyrirhuguð menningarmiðstöð verður staðsett í um 900 m² rými í austurhluta Smáralindar og er henni ætlað að verða opið og lifandi rými sem sameinar bókasafn, viðburðaaðstöðu og skapandi vinnusvæði fyrir fjölbreyttan hóp notenda. Verkefnið er liður í áframhaldandi þróun Smáralindar sem öflugs áfangastaðar fyrir verslun, þjónustu, menningu og afþreyingu. Stefnt er að því að menningarmiðstöðin verði opnuð vorið 2027.
Uppbygging menningarmiðstöðvarinnar á sér stað á sama tíma og aðsókn í Smáralind hefur aukist verulega. Á fyrsta ársfjórðungi 2026 jókst heimsóknarfjöldi um 21% samanborið við sama tímabil árið áður, sem gerir tímabilið að aðsóknarmesta fyrsta ársfjórðungi frá upphafi. Aukin aðsókn endurspeglar breiðara og sterkara framboð verslana, þjónustu, veitinga og afþreyingar.
Opnun Garðsins mathallar í lok nóvember 2025 hefur haft sérstaklega jákvæð áhrif á aðsóknina, en frá opnun mathallarinnar hafa um 300.000 manns snætt þar og gestafjöldi aukist jafnt og þétt. Þá hafa endurbætur á Smárabíói, nýir bíósalir, opnun nýrra verslana sem og vel sóttir viðburðir, styrkt heildarupplifun og aukið aðdráttarafl svæðisins.
„Stefna Heima um að byggja upp og efla kjarnasvæði þar fólk getur lifað, leikið og starfað á sama kjarnasvæði hefur skilað sér skýrt í þróun Smáralindar,“ segir Baldur Már Helgason, framkvæmdastjóri viðskipta hjá Heimum. „Með markvissum fjárfestingum höfum við þróað Smáralind í lifandi áfangastað þar sem verslun, þjónusta, afþreying og veitingar mynda sterka heild og þjóna gestum og íbúum á nærliggjandi svæðum vel. Með nýrri menningarmiðstöð Kópavogs stígum við næsta skrefið í þeirri vegferð sem mun styrkja enn frekar hlutverk Smáralindar sem miðpunktar mannlífs í Kópavogi og á höfuðborgarsvæðinu öllu“.