Sjálfbærni

Stefnur

Grænir leigusamningar

Bæklingar og skýrslur

Umhverfisvottanir fasteigna

Hafðu samband

Hverfahleðslustöðvar Heima

2.6.2025

Við Áslandsskóla, Hólagarða og Smáralind höfum við sett upp hleðslustöðvar sem nýtast sem hverfahleðslur.

Við Smáralind má finna alhliða rafbílahleðsluþjónustu sunnanmegin við húsið. Þar býst nágrönnum og öðrum, hefðbundin hverfahleðsla frá klukkan 19:00 til 08:00 að morgni þar sem slegið er verulega af mínútugjaldi. Þetta tryggir hagkvæmni með því að þjóna viðskiptavinum og starfsfólki Smáralindar á daginn en íbúum í nágrenninu á kvöldin og á nóttinni. Stöðvarnar við Áslandsskóla og Hólagarða eru á hverfahleðslugjöldum allan sólarhringinn.

Fyrir nákvæmar upplýsingar um gjöld og skilmála fyrir hverfahleðslu, hvetjum við notendur til að skoða Ísorkuappið.

Við erum spennt fyrir þessari þróun og erum áfram staðráðin í að bjóða upp á nýstárlegar lausnir sem koma til móts við fjölbreyttar þarfir samfélags okkar.