Listaverk Hallsteins Sigurðssonar á Hafnartorgi

Nú má finna fjögur steypt verk eftir myndlistarmanninn Hallstein Sigurðsson á Hafnartorgi. Hallsteinn Sigurðsson er einkum þekktur fyrir abstrakt skúlptúra sem líkja má við þrívíðar teikningar úr málmi en einnig steypt verk sem vísa í goðsöguleg minni.
Hallsteinn Sigurðsson fæddist þann 1. apríl 1945 og lést þann 24. janúar 2024. Hann á að baki áratuga myndlistarferil og eftir hann liggur fjöldi verka, einkum þrívíð verk unnin í málma, leir og gifs. Hann hneigðist snemma til sköpunar og þegar í gagnfræðiskóla var hann ákveðinn að helga myndlistinni starfsævi sína. Hann kynntist ungur verkum föðurbróður síns Ásmundar Sveinssonar myndhöggvara og sem unglingur aðstoðaði hann við að stækka verkin í garðinum umhverfis hús Ásmundar við Sigtún. Eftir að hafa kynnst þeirri vinnu var ekki aftur snúið og mótun varð að ástríðu. Hallsteinn nam við Myndlista- og handíðaskóla Íslands á árunum 1963 - 1966 en hélt síðan til London þar sem hann lagði stund á höggmyndagerð við Hammersmith College og víðar.
Hann hefur haldið á annan tug einkasýninga og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum og eru verk eftir hann víða í opinberum söfnum en einnig í einkaeigu. Þekkt eru listaverk hans í almenningsrými, jafnt í Reykjavík sem úti um land. Árið 2013 tók Reykjavíkurborg við veglegri gjöf Hallsteins til Reykvíkinga. Um var að ræða 16 höggmyndir úr áli sem Hallsteinn kom fyrir í landi Gufuness á árunum 1989 til 2012 og standa á hæð austan við gömlu áburðarverksmiðjuna í Gufunesi. Í dag er þar gróinn höggmyndagarður þar sem skúlptúrarnir hafa notið sín og veitt gestum og gangandi ánægju eftir að byggð þéttist í Grafarvogi.
Hallsteinn var alla tíð virkur þátttakandi í félagsstörfum myndlistarmanna, einkum í Myndhöggvarafélaginu í Reykjavík sem hann stofnaði ásamt fleirum árið 1972. Árið 2020 stofnaði Hallsteinn Menningarsjóð Hallsteins Sigurðssonar með aðsetur á heimili listamannsins að Ystaseli í Reykjavík. Þar bjó hann í nær hálfa öld, hafði þar vinnustofu og kom upp höggmyndagarði umhverfis húsið. Menningarsjóðurinn starfar í skjóli Myndhöggvarafélagsins og er markmið hans að koma á fót vinnustofu sem verður ráðstafað tímabundið til ólíkra myndlistarmanna sem fást við sköpun þrívíðra listaverka en jafnframt er hlutverk hans að halda á lofti minningu listamannsins.
Það er okkur mikill heiður að verk Hallsteins séu nú staðsett á einu kjarnasvæði okkar og að íbúar, viðskiptavinir og aðrir gestir geti notið þeirra. Öll þróun er hugsuð til að byggja upp og styrkja samfélögin innan kjarnasvæðanna sem svo eykur ávinning allra enn frekar. Ávinningurinn er augljós: Sterk kjarnasvæði skapa lífvænleg samfélög, fjölbreytt tækifæri og aukið virði fyrir íbúa, umhverfið, viðskiptavini og fjárfesta.