
Heimar munu á næstunni innleiða nýtt kerfi á bílastæðinu við Egilshöll. Markmiðið með breytingunni er að tryggja að gestir og viðskiptavinir eigi alltaf auðvelt með að finna laust stæði nálægt húsinu.
Á undanförnum misserum hefur það reynst mörgum erfitt að finna bílastæði við Egilshöll á álagstímum. Ástæðan er meðal annars sú að stæðin hafa verið nýtt til langtímageymslu á bílum, ferðavögnum og fleiru án leyfis, auk þess sem starfsfólk hefur í sumum tilfellum fyllt stæðin sem eru næst inngöngum Egilshallar. Þetta hefur skapað óþarfa hringakstur og skert aðgengi að húsinu fyrir þá sem eru að sækja þjónustu eða mæta á æfingar.
„Fólk mun áfram geta lagt frítt við Egilshöll upp að þremur klukkustundum en eftir það byrjar það að borga. Við viljum sem húseigandi einfaldlega tryggja að fólk komist að þegar það mætir. Gjaldtakan er ekki markmið í sjálfu sér heldur snýst þetta um að bæta aðgengi að húsinu. Langflestir dvelja skemur en þrjár klukkustundir í Egilshöll,“ segir Baldur M. Helgason, framkvæmdastjóri viðskipta hjá Heimum. „Þá munu ný skammtímastæði næst húsinu gjörbylta aðgengi fjölskyldufólks sem er að sækja og skutla.“
Almenn stæði (3 klst. frítt): Á stærsta hluta svæðisins geta gestir lagt í allt að þrjár klukkustundir án þess að greiða eða skrá sig. Það dugar fyrir flestar æfingar, bíóferðir eða heimsóknir.
Skammtímastæði (15 mín. frítt): Stæðin alveg næst inngöngunum verða frátekin fyrir þá sem þurfa að stoppa stutt, til dæmis til að sækja eða koma með börn á æfingar. Þar má leggja gjaldfrjálst í 15 mínútur.
Kerfið byggir á sjálfvirkri númeraplötugreiningu. Það verða engar bómuslár við inn- eða útkeyrslu og engir miðar.
Rekstur og þjónusta kerfisins er í höndum Green Parking.
Til að tryggja að bestu stæðin séu alltaf laus fyrir viðskiptavini mun starfsfólk í Egilshöll áfram fá að leggja í gjaldfrjáls starfsmannastæði, en þau færast lengra frá aðalinngöngum hússins.
Við hlökkum til að taka á móti ykkur í mun aðgengilegri og öruggari Egilshöll.
Kerfið verður innleitt í rólegheitum í sumar og í góðu samstarfi við rekstraraðila í húsinu. Fyrstu vikurnar munu fara í að stilla kerfið af og aðlaga það að raunverulegri notkun áður en farið verður af stað með rukkun fyrir þá sem stoppa lengur en frítíminn leyfir.
Við hlökkum til að taka á móti ykkur í mun aðgengilegri og öruggari Egilshöll.