Reginn undirritar kaupsamning um kaup á fasteignasöfnum Ósvarar ehf. og CFV 1 ehf.

Í tilkynningu Regins hf. þann 12. nóvember síðastliðinn kom fram að undirritað hefði verið samkomulag um kaup á fasteignasöfnum Ósvarar ehf. og CFV 1 ehf.
Í dag var undirritaður kaupsamningur milli Regins hf. og félaganna Ósvarar ehf. og CFV 1 ehf. á grunni ofangreinds samkomulags. Með kaupsamningi þessum kaupir Reginn hf. allt hlutafé í framangreindum félögum. Félögin tvö eru eigendur þeirra fasteignasafna sem samkomulag frá 12. nóvember sl. náði til. Undirritun kaupsamnings er gerð í kjölfar áreiðanleikakönnunar, sem nú er lokið.
Kaupverð, eðli og umfang viðskiptanna sem og metin áhrif á Reginn hf. er í samræmi við fyrri tilkynningu Regins hf. um kaupin. Tilkynningu Regins hf. frá 12. nóvember sl. má finna á heimasíðu félagsins www.reginn.is/fjarfestar.
Vakin er athygli á að kaupsamningurinn er enn háður fyrirvara um að hluthafar Regins hf. samþykki hlutafjáraukningu á hluthafafundi og að hluthafar falli frá forgangsrétti til áskriftar að hinu nýja hlutafé. Hluthafafundur verður boðaður á nýju ári og er stefnt að því að hann verði haldinn í mars. Þá er fyrirvari um samþykki Samkeppniseftirlitsins og að nýtt hlutafé verði skráð í Kauphöll.
Áætlað er að afhending félaganna fari fram á öðrum ársfjórðungi 2016.