Heimar birtu samþykkt uppgjör fyrir tímabilið 1.1.- 30.9.2026, eftir lokun markaða fimmtudaginn 5. nóvember 2026.

Reginn ehf. og dótturfélög efndu til lokaðs útboðs meðal tryggingafélaga þar sem óskað var eftir tilboðum í brunatryggingar, húseigendatryggingar og tryggingar gegn rekstrarstöðvun ásamt tryggingum á lausabúnaði og tækjum félagsins og dótturfélaga. Þátttakendur í útboðinu voru Sjóvá, Tryggingamiðstöðin (TM), Vátryggingafélag íslands (VÍS) og Vörður, allir þátttakendur lögðu fram tilboð í útboðinu.
Gerður verður 3ja ára samningur við lægstbjóðanda, Sjóvá, um tryggingar í samræmi við niðurstöður útboðs.