Þrettán nýir veitingastaðir opna í Smáralind

Heimar og Smáralind hafa skrifað undir samning við þrettán veitingaaðila um opnun veitingastaða á nýju og stórglæsilegu veitingasvæði í austurenda Smáralindar sem opnar í haust.
Með nýja veitingasvæðinu styrkist veitinga- og afþreyingarflóra Smáralindar með fjölbreyttara úrvali veitinga sem höfðar til hópa í mismunandi erindagjörðum, allt frá fólki í leit að fljótgerðum og aðgengilegum mat yfir í hágæða matarupplifun. Veitingasvæðið verður mikil lyftistöng fyrir þær tugþúsundir sem búa og starfa í kringum Smáralind og verður kærkomin viðbót í veitingaflóru svæðisins, hvort sem er á daginn eða á kvöldin.
Af þeim þrettán veitingastöðum sem opna á nýja veitingasvæðinu eru tíu nýir í Smáralind og nokkrir sem hingað til hafa aðeins verið í miðbæ Reykjavíkur. Veitingastaðirnir sem verða hluti af nýja veitingasvæðinu í Smáralind eru: Djúsí Sushi, Funky Bhangra, La Trattoria, Hjá Höllu, Fuego, Neo pizza, Yuzu borgarar, Gaeto Gelato, Sbarro, Serrano, Subway, Top wings og 5 Spice by XO.
„Við höfum fengið til liðs við okkur farsælustu veitingaaðila landsins til að sjá um matarupplifunina á þessu nýja svæði í Smáralind. Svæðið sjálft er hannað af Javier Bootello og hans fólki hjá Basalt arkitektum og hugsunin er að þarna geti fólk komið saman, notið góðs matar og átt huggulega stund í fallegu umhverfi hvort sem það er í hádeginu eða á kvöldin,” segir Baldur Már Helgason, framkvæmdastjóri viðskipta hjá Heimum.
Gleði og eftirvænting sveif yfir vötnum þegar starfsfólk Heima og Smáralindar og rekstraraðilar nýju veitingastaðanna komu saman til að innsigla samstarfið. Búist er við að framkvæmdum ljúki á næstu vikum og að hægt verði að opna nýju veitingastaðina um mánaðarmótin október/nóvember.
Opnun veitingasvæðisins markar tímamót í sögu Smáralindar og setur nýjan mælikvarða á fjölbreytni og gæði veitingaframboðs í verslunarmiðstöðvum hér á landi.