
Síðastliðinn fimmtudag, þann 5.nóvember kynnti Halldór Benjamín Þorbergsson forstjóri Heima, uppgjör fyrir þriðja ársfjórðung 2026.
Helstu atriði níu mánaða uppgjörs:
▪ Rekstrartekjur voru 13,2 ma.kr. á fyrstu níu mánuðum ársins og leigutekjur hækka um 12,2% frá fyrra ári sem er 7,2% umfram hækkun verðlags á sama tíma.
▪ Raunvöxtur leigutekna á sambærilegu eignasafni milli ára er 3,1%.
▪ EBITDA nam um 8,9 ma.kr. og hækkar um 10,3% m.v. sama tímabil árið 2025.
▪ Hagnaður var um 4,2 ma.kr. samanborið við 2,9 ma.kr. á sama tímabili í fyrra.
▪ Arðsemi eiginfjár var 7,1%.
▪ Handbært fé frá rekstri síðustu tólf mánaða um 9,9% af markaðsvirði félagsins í lok fjórðungs.
▪ Fjárfestingaeignir voru bókfærðar á 244 ma.kr. í lok tímabils.
▪ Matsbreyting fjárfestingaeigna nam 7,5 ma.kr. á fyrstu níu mánuðum ársins.
▪ Handbært fé nam um 3,6 ma.kr. í lok tímabils.
▪ Vaxtaberandi skuldir voru 147 ma.kr. í lok tímabils.
▪ Skuldahlutfall var 61,5% og eiginfjárhlutfall 31,9% í lok tímabils.
Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima:
„Rekstur Heima er stöðugur og tekjugrunnur félagsins traustur. Útleiguhlutfall er áfram hátt, eða 96% og 42% leigutekna koma frá opinberum aðilum og skráðum félögum. Áhersla á uppbyggingu og þróun kjarnasvæða heldur áfram að styrkja eignasafn félagsins til lengri tíma. Stjórn Heima hefur samþykkt nýja arðgreiðslustefna sem byggir á traustum undirliggjandi rekstri og skýrri fjárfestingastefnu. Á næstu misserum bætast stór tekjuberandi fjárfestingaverkefni við eignasafnið með traustum leigutökum. Með markvissri uppbyggingu hefur verið skapaður grunnur að auknum arðgreiðslum til hluthafa samhliða áframhaldandi fjárfestingum. Stefnt er að því að ráðstafa árlega fjárhæð sem nemur að lágmarki 60% af handbæru fé frá rekstri til hluthafa. Stjórn horfir í auknum mæli til arðgreiðslna umfram endurkaup. Áherslubreytingin endurspeglar stöðu félagsins í dag og aukið svigrúm til að láta hluthafa njóta ávinnings af traustum rekstri og uppbyggingu undanfarinna ára. Þetta markar nýjan áfanga í þroskaferli félagsins sem stendur á traustum grunni og er í kjörstöðu til að sækja fram.“
Upptöku af kynningarfundinum og önnur kynningargögn má finna hér.