Heimar munu birta samþykkt uppgjör fyrir tímabilið 1.1.- 30.9.2026, eftir lokun markaða fimmtudaginn 5. nóvember 2026.

Það verður fagnað komu vetrar með Vetrarfjöri um helgina í Smáralind. Frábær tilboð verða í verslunum, á veitingastöðum, í Smárabíói og í Baðhúsinu. Smáratívolí verður með hrekkjavöku alla helgina með búningakeppni á laugardag og hryllingshús fyrir 16 ára og eldri.
Á laugardag og sunnudag kl. 14 verða skemmtilegar uppákomur fyrir yngri kynslóðina í gryfjunni á 1. hæð. Þar mun Vísinda Villi og Leikhópurinn Lotta koma fram.